4.9 C
Selfoss

Undirbúningshópur skipaður vegna byggingar nýs skóla á Selfossi

Vinsælast

Bæjarráð Árborgar samþykkti á fundi sínum 14. september sl. að skipa fimm fulltrúa í undirbúningshóp vegna hugmynda- og undirbúningsvinnu við byggingu nýs grunnskóla í svokölluðu Björkustykki sem er vestan við byggðina á Selfossi. Í vinnunni skal horft til starfshátta og heildarskipulags skóla og skólalóðar út frá skólastefnu Árborgar, reynslu og nýjustu þekkingu í kennslufræðum. Hópnum er einnig ætlað að leita eftir ábendingum og hugmyndum frá ýmsum aðilum skólasamfélagsins í Árborg og kynni sér nýlegar skólabyggingar í öðrum sveitarfélögum með það að meginmarkmiði að ný skólabyggingin verði heildstæð og hlýleg. Hún skal meðal annars taka mið af þörfum nemenda og starfsfólks og hæfi vel starfseminni.

Undirbúningshópinn skipa Sandra Dís Hafþórsdóttir, Magnús Gíslason, Arna Ír Gunnarsdóttir, Eyrún B. Magnúsdóttir og Þorsteinn Hjartarson.

Nýjar fréttir