1.1 C
Selfoss
Home Fréttir Sektað fyrir 5,6 milljónir í liðinni viku

Sektað fyrir 5,6 milljónir í liðinni viku

0
Sektað fyrir 5,6 milljónir í liðinni viku

Álagðar sektir hjá lögreglunni á Suðurlandi síðastliðna viku vegna umferðarlagabrota í umdæminu sem ljúka má með greiðslu greiðsluseðils námu um 5,6 milljónum króna. Um er að ræða 113 mál alls og af þeim kærðu bera tæplega 40% íslenska kennitölu.

Alls var 81 aðili kærður fyrir að aka of hratt í liðinni viku og hafa nú 1584 orðið þeirra örlaga aðnjótandi það sem af er árs í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.

Af þessum ökumönnum voru 14 kærðir af lögreglumönnum við sérstakt eftirlit í Öræfum en þar hefur verið gerður út sérstakur bíll til að bregðast við mikilli umferð þar og þeirri staðreynd að 200 km eru á milli lögreglustöðva á Höfn annars vegar og Kirkjubæjarklausturs hins vegar. Þrír voru kærðir við Vík, 3 á Kirkjubæjarklaustri og 17 af eftirliti gerðu út frá Hvolsvelli. Sérstakt eftirlit í uppsveitum Árnessýslu leiddi til þess að 2 voru kærðir fyrir hraðakstur þar.

„Pundararnir“ okkar, þessir sem áður voru hjá Samgöngustofu og sinntu eingöngu tilteknum umferðarlagabrotum sem undir þá stofnun heyrði, kærðu 13 fyrir að aka of hratt. 27 voru kærðir fyrir of hraðan akstur af eftirlitsbílum frá Selfossi. Einn þeirra, stúlka um tvítugt, reyndist undir áhrifum fíkniefna þar sem hún ók bifreið sinni um Hellisheiði með 135 km/klst hraða þar sem leyfður hraði er 90 km/kls. Hún var færð á stöð til töku blóðsýna og í framhaldi af því svipt ökuréttindum til bráðabirgða.

Fimm aðrir reyndust undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í umdæminu, einn var tekinn grunaður um ölvun á Höfn, annar á Selfossi, einn við Hveragerði, einn í uppsveitum Árnessýslu og einn var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og/eða lyfja á Suðurlandsvegi austan við Hvolsvöll.

Ökuhraði er alltaf sérstakt áhersluatriði í umferðareftirlitinu þar sem að beint orsakasamband er milli ökuhraða og umferðarslysa og síðan afleiðinga slysanna. Því hraðar sem ekið er þeim mun meiri líkur eru á að lenda í slysi og eftir því sem hraðinn er meiri eru líkur á að meiðslin verði meiri. Þekkt sannindi sem vilja gleymast.