0.3 C
Selfoss

Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar í Skyrgerðinni í kvöld

Vinsælast

Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar verða í Skyrgerðinni í Hveragerði í kvöld á Blómstrandi dögum. Sveitin hefur verið á ferð og flugi undanfarið með viðkomu á öllum helstu tónlistarhátíðum sumarsins. Einnig hefur sunnudagshugvekja Jónasar og Ritvélana á Kaffi Rósenberg í Reykjavík vakið mikla lukku og sveitin spilað fyrir fullu húsi hvern sunnudaginn á fætur öðrum í sumar og stemning slík að þakið hefur nokkrum sinnum ætlað af húsinu.

Nú er komið að Suðurlandi og nánar tiltekið Hveragerði þar sem hljómsveitin verður með tónleika sem hluta af bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum. Hér er kærkomið tækifæri að slá margar flugur í einu höggi. Heimsækja blómabæinn sjálfan, berja augum fæðingarstað hins heilaga Kjöríss og enda síðan heimsóknina í einum elsta og hlýlegasta tónleikasal Suðurlands, Skyrgerðinni og njóta tónlistar með hljómsveit sem margir vilja meina að sé einhver skemmtilegasta og kraftmesta tónleikasveit landsins um þessar mundir.

Random Image

Nýjar fréttir