-0.5 C
Selfoss
Home Fréttir Íslenskar söngperlur á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst

Íslenskar söngperlur á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst

0
Íslenskar söngperlur á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst
Helga og Þórhildur. Mynd: Daníel Starrason.

Tónleikar undir yfirskriftinni „Íslenskar söngperlur í áranna rás“ verða haldnir í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli fimmtudaginn 10. ágúst nk. kl. 20:00. Þar munu koma fram Þórhildur Örvarsdóttir söngkona og Helga Kvam píanóleikari. Á dagskrá eru íslenskar söngperlur allt frá Sigvalda Kaldalóns til Megasar.

Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist. Þær opnuðu tónleikaröð Listasumars á Akureyri með dagskránni Íslenskar söngperlur í áranna rás fyrir fullum sal. Þórhildur og Helga eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða. Miðaverð er krónur 2500 við innganginn.