7.3 C
Selfoss

Um 80 keppendur hjóluðu í Rangárþingi Ultra

Vinsælast

Fjallahjólakeppnin Rangárþing Ultra var haldin í fyrsta skipti síðastliðinn laugardag. Keppnin gekk vel og um 80 keppendur hjóluðu. Þrátt fyrir örlítinn mótvind á síðari hluta leiðarinnar skiluðu sér allir í mark og voru keppendur gríðarlega ánægðir með ægifagra náttúru svæðisins og skemmtilega leið.

Sveitarfélögin Rangárþing ytra og Rangárþing eystra stóðu saman að keppninni en hún er sprottin upp úr hinni vinsælu götuhjólakeppni Tour de Hvolsvöllur.

Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, ræsti á Hellu kl. 12:00. Í stað þess að hjóla út á þjóðveg lá leiðin í gegnum þorpið á Hellu, upp hjá bóndabænum Helluvaði og þaðan upp Helluvaðssand. Farið var um Rangárvelli þar til komið var að Fiská og þaðan farið niður í Fljótshlíð og loks endað á Hvolsvelli. Þeir allra fyrstu voru ekki nema 1 klst og 45 mínútur að hjóla þessa 50 km löngu leið. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri Rangárþings eystra veitti svo verðlaun á Hvolsvelli að lokinni keppni.

Á næsta ári verður leiðinni snúið við. Byrjað verður á Hvolsvelli og endað á Hellu. Skipuleggjendur búast við enn stærri keppni þá og ekki seinna vænna en að hefja undirbúning strax fyrir þá sem ætla að taka þátt. Keppnisstjórn þakkar keppendum fyrir þátttökuna og öllum sem aðstoðuð við að gera þessa keppni að veruleika.

Fremstu tveir, Ingvar og Birkir Snær, etja kappi. Mynd: Marta Gunnarsdóttir.

Heildarúrslit voru þessi:

Karlar

  1. Ingvar Ómarsson 01:46:44,2 klst.
  2. Birkir Snær Ingvason 01:46:45,4 klst.
  3. Kristjan Jakobsson 01:54:37,8 klst.

Konur

  1. Anna Kristín Pétursdóttir 02:19:19,9 klst.
  2. Kristrún Lilja Júlíusdóttir 02:22:54,7 klst.
  3. Valborg Guðlaugsdóttir 02:24:03,0 klst.

Nánari úrslit eru aðgengileg á www.timatakan.net og allar upplýsingar á www.rangarthingultra.is

Nýjar fréttir