1.1 C
Selfoss

Tónlistarhátíðin Englar og menn hefst á sunnudaginn

Vinsælast

Hin árlega tónlistarhátíð Englar og menn hefst í Strandarkirkju sunnudaginn 2. júlí nk. með opnunartónleikum kl. 14. Þar munu Gissur Páll Gissurarson tenór og Dísella Lárusóttir sópran stíga á stokk ásamt Árna Heiðari Karlssyni píanóleikara. Þau flétta saman lög og ljóð frá nyrstu oddum til syðstu tanga, allt frá Jóni Ásgeirssyni til Grieg og Verdi.

Hátíðin verður alla sunnudaga í júlí og er nú haldin í fimmta sinn. Hátíðin í ár verður glæsileg sönghátíð líkt og á undanfarin ár, þar sem fram koma margir fremstu söngvara og hljóðfæraleikara landsins ásamt ungum og upprennandi söngvurum. Á hátíðinni ár verða einnig heiðursgestir frá Englandi sem tengja keltneska þjóðlagaarfinn við hinn íslenska.

Í Strandarkirkju er einstakur hljómburður og helgi sem skapar hlýja stemningu og nálægð. Flytjendur sumarsins eru með það í huga við val á efnisskrá sinni sem er afar fjölbreytt og er í takt við anda og sögu staðarins. 

Sunnudaginn 9. júlí koma fram Margrét Hannesdóttir sópran, Aðalsteinn Már Ólafsson tenór og Sólborg Valdemarsdóttir leikur með þeim á píanó.
Þann 16. júlí verða Ragnheiður Gröndal og breska söngkonan Heloise Pilkington með þjóðlög og frumsamið efni og með þeim leika Guðmundur Pétursson á gítar og Gerry Diver á fiðlu. Söngkonurnar Bylgja Dís Gunnarsdóttir og Margrét Brynjarsdóttir koma fram á tónleikum hátíðarinnar 23. júlí og með þeim leikur Helga Bryndís Magnúsdóttir á píanó og orgel.
Dúettinn Duo Atlantica kemur síðan fram 30. júlí en hann skipa Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari. Hátíðinni lýkur svo með uppskerumessu og lokatónleikum 13. ágúst kl. 15 þar sem fram koma Björg Þórhallsdóttir sópran, Elísabet Waage hörpuleikari og Hilmar Örn Agnarsson organisti. Sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur annast guðsþjónustuna.

Þema hátíðarinnar er englar og menn, land, náttúra, trú og saga þar sem þjóðlög, einsöngslög og dúettar, ásamt innlendum og erlendum trúarljóðum hljóma.

Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona er listrænn stjórnandi og framkvæmdastjóri hátíðarinnar, sem er styrkt af Sambandi sunnlenskra sveitarfélaga, Tónlistarsjóði og Strandarkirkjunefnd. Aðgangseyrir að tónleikunum er  2.000 kr, ekki er tekið við greiðslukortum. 

Strandarkirkja er ein þekktasta áheitakirkja landsins og þykir þar vera sérstakur kraftur til hjálpar og bænheyrslu. Yfirskrift hátíðarinnar vísar til helgisagnarinnar um fyrstu kirkjuna þar, um ljósengilinn sem birtist sæförum í sjávarháska og þeir hétu á í örvæntingu sinni. Hann vísaði þeim að landi og þeir reistu þar kirkju í þakklætisskyni.

Mikil fegurð er í Selvognum og þangað er um klukkustundar akstur frá Reykjavík um Þrengslin. Tilvalið er að taka með sér nesti eða gera vel við sig hjá heimamönnum í Pylsuvagninum eða á kaffihlaðborði í T-bæ. Í Selvognum eru einnig næg tjaldstæði og góð aðstaða fyrir ferðamenn.

Á heimasíðu hátíðarinnar www.englarogmenn.is er ítarleg dagskrá sem og á Facebook síðu hátíðarinnar. Nánari upplýsingar veitir: Björg Þórhallsdóttir í síma 898 4016.

Nýjar fréttir