6.7 C
Selfoss
Home Fréttir Blómstrandi tónleikahald í Skálholti

Blómstrandi tónleikahald í Skálholti

0
Blómstrandi tónleikahald í Skálholti
Frá Sumartónleikum í Skálholti 2016.

Undirbúningur fyrir Sumartónleika í Skálholti er kominn á fullan skrið og spennandi að fylgjast með því sem þar er í vændum. Á sumartónleikunum í ár koma fjölmargir íslenskir listamenn fram en einnig erlendir gestir frá Svíþjóð, Frakklandi og síðast en ekki síst er von á heimsfrægum ungmennakór frá Ástralíu, The Gondwana singers.

Dagskráin í sumar einkennist af því, sem hefur reyndar verið á stefnuskrá Sumartónleikanna frá upphafi, en það er nútímatónlist og nýsköpun og svo á hinn bóginn barokktónlist leikin á upprunaleg hljóðfæri. Staðartónskáld 2017 er ein af okkar frábæru ungu tónskáldum, María Huld Markan Sigfúsdóttir. Á laugardögum kl. 13 verða einnig haldnir fræðandi fyrirlestrar í Skálholtsskóla um efni sem tengjast tónleikahaldinu. (Sjá nánar á heimasíðu Sumartónleikanna).

Sumartónleikaröðin 2017 hefst með tónleikum Hljómeykis þann 8. júlí. Hljómeyki mun þá flytja verkið Ljósbrot eftir John Speight, en hann samdi tónlistina árið 1991, sem þakklætisvott fyrir þann innblástur sem hann fékk frá steindu gluggunum sem Gerður Helgadóttir hannaði fyrir kirkjuna. Með því að flytja þetta verk vilja Sumartónleikarnir minna á myndlistina í Skálholtskirkju sem þarfnast viðgerða og viðhalds. Það á ekki bara við um gluggana heldur líka altaristöflu Nínu Tryggvadóttur.

Á heimasíðu sumartónleikanna má fá nánari upplýsingar um dagskrána og hvetjum við fólk til að kíkja á hana og finna viðburði við sitt hæfi. Aðgangur á alla tónleika er ókeypis, en tekið er við frjálsum framlögum við innganginn. Að hlýða á tónleika í Skálholtskirkju getur gert heimsókn um Suðurland að ógleymanlegri tónlistarupplifun.