8.9 C
Selfoss

Eldur í rafmagnstöflu í gistihúsi á Stokkseyri

Vinsælast

Brunavarnir Árnessýslu fengu í nótt tilkynningu um eld innandyria í gistihúsi á Stokkseyri. Þegar vakthafandi varðstjóra BÁ og lögreglu bar að garði slökktu þeir eldinn, sem reyndist vera í rafmagnstöflu, með duftslökkvitæki. Stuttu síðar kom dælubíll með reykköfurum á vettvang og fóru reykkafarar inn og slökktu í þeim glæðum sem eftir voru. Reykræsta þurfti húsnæðið að slökkvistarfi loknu. Ekki varð teljandi tjón á fasteigninni vegna eldsins og ekki er vitað til þess að gestum gistiheimilisins hafi orðið meint af vegna atviksins. Þetta kemur fram á facebook síðu Brunavarna Árnessýslu.

Nýjar fréttir