-0.9 C
Selfoss

Leikfélag Hveragerðis sýnir í Þjóðleikhúsinu

Vinsælast

Val Þjóðleikhússins á athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins hefur nú farið fram í tuttugasta og fjórða sinn. Að þessu sinni sóttu alls ellefu leikfélög um að koma til greina við valið með tólf sýningar. Að valinu á áhugasýningu ársins komu að þessu sinni fjórir leikarar úr leikhópi Þjóðleikhússins, þau Atli Rafn Sigurðarson, Edda Arnljótsdóttir og Lára Jóhanna Jónsdóttir og Snorri Engilbertsson, ásamt Ara Matthíassyni þjóðleikhússtjóra. Fyrir valinu að þessu sinni sem áhugasýning ársins varð sýning Leikfélags Hveragerðis á Naktir í náttúrunni.

Umsögn dómnefndar um sýninguna er svohljóðandi:
Naktir í náttúrunni í uppsetningu Leikfélags Hveragerðis er leikgerð leikstjórans, Jóns Gunnars Þórðarsonar, sem byggð er á The Full Monty, verki um atvinnulausa menn sem taka sig saman og fara að æfa strippdans til að hafa í sig og á. Þessi leið, að vinna með þekkt verk og aðlaga það leikhópnum og aðstæðum í heimabyggð, heppnast hér ákaflega vel, og sýningin öðlast aukinn áhrifamátt við það að atvinnumissir persónanna er settur í kunnuglegt samhengi. Verkið krefst ákveðinnar djörfungar af leikhópnum, og hópurinn leggur sig allan fram í metnaðarfullri, kraftmikilli og skemmtilegri sýningu.“

Sýningin verður væntanelga í Þjóleikhúsinu í júní.

Random Image

Nýjar fréttir