-0.6 C
Selfoss

Ný músík og ný ljóð í Bókakaffinu á laugardag

Vinsælast

Laugardaginn 29. apríl kl. 14:30 verður menningardagskrá í Bókakaffinu á Selfossi. Norski kvartettinn Tøyen Fil og Klafferi flytur samtímatónlist frá Noregi og Íslandi. Þá mun Halldóra Thoroddsen lesa úr nýrri ljóðabók sinni Orðsendingar. Halldóra fékk í síðustu viku bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins fyrir bók sína Tvöfalt gler. Tónlistardagskráin stendur í rúman hálftíma og milli verka les Halldóra úr bók sinni. Kaffi í boði hússins, allir velkomnir.

Random Image

Nýjar fréttir