1.7 C
Selfoss

ML getur ekki án íþróttahússins verið!

Vinsælast

Skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni samþykkti sérstaka bókun á skólanefndarfundi sem haldinn var 21. apríl sl. Jafnframt var skólameistara falið að senda bókunina öllum þingmönnum Suðurkjördæmis, fjölmiðlum, ráðherrum fjármála og menntamála og sveitarstjórnum á Suðurlandi

Bókunin er svohljóðandi:

Öflugt íþrótta- og félagslíf hefur verið eitt af aðalsmerkjum Menntaskólans að Laugarvatni (ML) frá stofnun hans. Íþróttakennsla og íþróttaiðkun nemenda er honum og þeim afar mikilvæg. ML er heilsueflandi framhaldsskóli og hefur lagt ríka áherslu á hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.

Skólanefnd Menntaskólans að Laugarvatni lýsir þungum áhyggjum yfir því að enn er það óleyst hver mun verða húsráðandi núverandi Íþróttahúss og sundlaugar Háskóla Íslands á Laugarvatni þar sem Íþróttafræðasetur HÍ hefur verið lagt niður. Menntaskólinn að Laugarvatni hefur hingað til leigt íþróttaaðstöðu, vegna kennslu og íþróttaiðkunar nemenda, af Háskóla Íslands en einnig hafa ýmsir viðburðir á vegum menntaskólans farið fram í íþróttahúsinu tengt félags- og íþróttalífi. Svo og hefur útskrift og skólaslit ML vor hvert farið fram í Íþróttahúsinu í áratugi.

Ef ML mun ekki fá að nýta aðstöðu þá sem um ræðir til þeirra þátta sem nefndir eru verður grafið mjög undan framtíð skólans og samfélagsins.

ML getur ekki án íþróttahússins verið!

Skólanefnd ML hvetur ráðherra mennta- og menningarmála og ráðherra fjármála að finna viðhlýtandi lausn til framtíðar hið allra fyrsta.

Nýjar fréttir