-0.5 C
Selfoss

Grýlupottahlaupið hefst á morgun

Vinsælast

Grýlupottahlaup Selfoss 2017 hefst á morgun laugardaginn 22. apríl. Er þetta í 48. skipti sem hlaupið er haldið en það er meðal elstu viðburða sem fram fara árlega á Selfossi.
Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið sjálft hefst svo kl. 11:00.

Grýlupottahlaupið er 850 m langt og eru sex ein­stakl­ingar ræstir saman með hálfrar mínútu millibili. Þátttakendur eru á öll­um aldri og er aðalatriðið að vera með. Hlaupið fer fram sex laugar­daga í röð. Fyrsta hlaupið er 22. apríl, síðan 29. apríl, 6. maí, 13. maí, 20. maí og 27. maí. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjór­um hlaupum og veitt verðlaun. Stefnt er á að hafa verðlauna­afhendingu fimmtudaginn 1. júní í Tíbrá klukkan 11. Keppt er í öllum aldurs­flokk­um karla og kvenna.

Nýjar fréttir