3.4 C
Selfoss

Frí á launum fjórum vikum fyrir fæðingu hjá Hveragerðisbæ

Vinsælast

Bæjarráð Hveragerðis samþykkti nýlega að barnshafandi starfsmenn bæjarins eigi möguleika á launuðu fríi einum mánuði fyrir settan fæðingardag. Fæðingardag þarf að staðfesta með læknisvottorði. Í frétt á heimasíðu bæjarins segir að starfsmanni beri að tilkynna yfirmanni eins fljótt og kostur er hvort hann hyggist nýta sér þennan rétt.

Í minnisblaði bæjarstjóra með tillögunni sem borin var upp á fundi bæjarráðs kom fram að Hveragerðisbær er stærsti vinnuveitandi bæjarfélagsins með um 200 starfsmenn. Þar segir einnig að starfsmenn bæjarins vinni afar mikilvæg og krefjandi störf sem flest hver felist í líkamlegri áreynslu og/eða andlegri. Mikilvægt sé að koma til móts við starfsmenn á stóru stundunum í lífi þeirra og létta undir þar sem það er hægt. Færa megi sannfærandi rök fyrir því að jafn stórum vinnuveitenda og Hveragerðisbæ beri að leggja sín lóð á vogaskálarnar í þeim tilgangi að auðvelda starfsmönnum að samræma fjölskyldulíf og atvinnuþátttöku.

Tillagan var samþykkt samhljóða og tekur fyrirkomulagið þegar gildi.

Random Image

Nýjar fréttir