-1.5 C
Selfoss

Góð staða Héraðssambandsins Skarphéðins

Vinsælast

Rúmlega 100 manns mættu á héraðsþing HSK sem haldið var á Hótel Örk á laugardaginn var. Góðar umræður voru í nefndum þingsins og um 20 tillögur samþykktar. Breytingar urðu á stjórn sambandsins. Rut Stefánsdóttir gaf ekki kost á sér áfram og var Baldur Gauti Tryggvason kosinn meðstjórnandi, en hann átti sæti í varastjórn. Gísli Örn Brynjarsson Umf. Biskupstungna var kosinn nýr í varastjórn. Stjórn sambandsins sem var kosin á þinginu skipa þau, Guðríður Aadnegard formaður, Guðmundur Jónasson gjaldkeri, Helgi S. Haraldsson varaformaður, Anný Ingimarsdóttir ritari og Baldur Gauti Tryggvason meðstjórnandi. Í varastjórn eru Gestur Einarsson, Olga Bjarnadóttir og Gísli Örn Brynjarsson.

Á þinginu var lögð fram vegleg ársskýrsla um störf sambandsins á liðnu ári. Í skýrslunni eru m.a. stuttir pistlar um störf aðildarfélaga sambandsins. Um 50 ár eru síðan ársskýrsla HSK kom fyrst út á prenti. Nálgast má ársskýrsluna á www.hsk.is undir fundargerðir.

Jón Jónsson fyrrverandi formaður HSK var sæmdur gullmerki HSK fyrir störf sín í þágu sambandsins í áratugi. Guðríður Aadnegard formaður HSK var sæmd gullmerki ÍSÍ og silfurmerki ÍSÍ hlutu Baldur Gauti Tryggvason Umf. Þjótanda og Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni. Starfsmerki UMFÍ hlutu þau María Rósa Einarsdóttir, Dímoni, Olga Bjarnadóttir Selfossi og Valdimar Hafsteinsson Hamri.

Reikningar sambandsins voru lagðir fram og samþykktir samhljóða. Hagnaður af rekstri sambandsins á síðasta ári var 681.046 kr. Varð hann heldur meiri en áætlun gerði ráð fyrir. Skýrast það af stærstum hluta af meiri lottótekjum. Sambandið skuldar ekkert og er eigið fé þess um 18,3 milljónir.

Íþróttafólk í 21 íþróttagrein sem stundaðar eru innan sambandsins var heiðrað og úr þeirra hópi var Margrét Lúðvígsdsdóttir, fimleikakona úr Umf. Selfoss, valin íþróttamaður HSK 2016.

Ýmis sérverðlaun voru veitt á þinginu. Íþróttafélagið Dímon var stigahæsta félagið, Golfklúbbur Selfoss fékk unglingabikar HSK og frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss hlaut foreldrastarfsbikar HSK. Þá var Kjartan Lárusson valinn öðlingur ársins.

Samkvæmt venju fór sleifarkeppni HSK fram á þinginu og þar sigraði Rut Stefánsdóttir Hestamannafélaginu Sleipni. Undir lok þingsins var Guðmundur Pálsson Umf. Selfoss útnefndur matmaður þingsins.

Random Image

Nýjar fréttir