6.7 C
Selfoss

FSu er „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“

Vinsælast

Í hálfleik á heimaleik FSu í 1. deild karla í körfubolta í síðustu viku afhenti Sigríður Jónsdóttir, ritari framkvæmdastjórnar ÍSÍ og formaður fræðslu- og þróunarsviðs sambandsins, Körfuknattleiksfélagi FSu viðurkenningu sem „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“.

Viðurkenning þessi byggir á „Gæðahandbók“ sem skila þarf inn og uppfylla ákveðin skilyrði. Gæðahandbókin er lýsing á stjórnun og starfsemi félagsins. Þar eru sett fram ítarleg markmið fyrir starf félagsins og leiðir að þeim; aldursgreind markmið og áherslur í körfubolta, en einnig félagsleg markmið, markmið fyrir fjármál og rekstur, markmið í umhverfismálum o.fl. Í Gæðahandbókinni er einnig viðbragðsáætlun og forvarnarstefna gegn einelti, mismunun og hvers kyns ofbeldi.

Stjórn félagsins hefur undanfarna mánuði unnið að því að endurskoða, auka og bæta gæðahandbókina en félagið hefur einu sinni áður hlotið þessa viðurkenningu, sem veitt er til fjögurra ára í senn.

Viðurkenningunni var veitt viðtaka að viðstöddum góðum hópi stuðningsmanna og foreldra yngstu iðkendanna sem tóku virkan þátt í viðburðinum.

Kjartan Björnsson, formaður íþrótta- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Árborgar var einnig viðstaddur og óskaði félaginu til hamingju, en sveitarfélagið styrkir Fyrirmyndarfélög og -deildir í Árborg rausnarlega, um 700 þúsund krónur við afhendingu og síðan 500 þúsund krónur á ári meðan viðurkenningin er virk.

Nýjar fréttir