-1.6 C
Selfoss

Fjölluðu um notkun á plasti í skólanum sínum

Vinsælast

Hópur nemenda í 10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi fjölluðu fyrir skömmu um plast og notkun á plasti í skólanum sínum. Skoðaður var kostnaður á plastpokum í ruslafötur á kennslusvæðum og áhrif plasts á umhverfið. Nemendur komust að því að notaðir eru plastpokar fyrir tæpar 300.000 kr. á ári. Einnig komust þau að því að stefna í flokkunarmálum hjá Sveitafélaginu Árborg er mjög óljós og flest heimili í sveitafélaginu flokka almennt ekki plast.

Í nýlegum fréttum hefur komið fram að Sameinuðu þjóðirnar hafa hrint af stað alheimsherferð undir nafninu Clean Seas, eða Hreint haf. Þar eru þjóðir heims hvattar til draga úr plastnotkun. Þá eru fyrirtæki sérstaklega hvött til að minnka plastumbúðir á vörum sínum. Markmið herferðarinnar er að hætta allri notkun á einnota plasti fyrir árið 2022. Talið er að ef engin breyting verður á plastnotkun í heiminum verði jafn mikill fiskur og plast í sjónum og að um 99% sjófugla verði með plast í maganum árið 2050.

Það tekur plast um 500 ár að eyðast í náttúrunni og hefur það sérstaklega slæm áhrif á lífríki hafsins. Í tilkynningu frá krökkunum í Sunnulækjarskóla kemur fram að fyrir skóla eins og Sunnulækjarskóla væri lítið mál að sleppa notkun á einnota plastpokum. Þetta snýst bara um að koma hlutunum í framkvæmd. Krakkarnir skora á sveitafélagið að taka fyrsta skrefið og hefja flokkun á plasti og hrinda af stað herferð um að minnka notkun á einnota plasti.

Nýjar fréttir