9.5 C
Selfoss

Landsliðið vann Flóafár í FSu

Vinsælast

Landsliðið sigraði hið árvissa Flóafár sem fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurlands í gær. Í Flóafári keppa lið undir stjórn nemenda í þrautum sem starfsmenn skólans útbúa. Keppt er um stig fyrir þrautarlausnir og að klára á góðum tíma. Skólinn allur er undirlagður, hver krókur og kimi notaður og mikill metnaður hjá öllum liðum að vera með flottan heildarsvip, útbúa sitt svæði, halda góðum liðsanda, semja skemmtiatriði og skipuleggja sig vel. Fimm lið tóku þátt að þessu sinni, hvert með sinn einstaka stíl, Landsliðið, Sailors, Indjánar, Beta house og Circus. Sem fyrr sagði sigraði Landsliðið, en í 2. sæti varð Sailors. Veittar voru sérstakar viðurkenningar fyrir ákveðin atriði: Indjánar sigruðu í borðalagningu, Sailors fengu viðurkenningu fyrir besta herópið og Circusliðið fyrir besta svæðið, Indjánar fengu verðlaun fyrir bestu búningana og viðurkenningu fyrir besta skemmtiatriðið fékk Landsliðið.

Starfsmenn keppa svo innbyrðis um besta búninginn, en það voru þær Inga Magnúsdóttir og Helga Dögg Sigurðardóttir sem fengu viðurkenningu fyrir sína búninga, en þær mættu sem Jógagúrúar.

Á heimasíðu FSu kemur fram að keppnin hafi farið einstaklega vel fram, allir hafi staðið sig mjög vel og dagurinn góður endir á vel heppnaðri viku með kæti og gleði að leiðarljósi eins og FSu-ingum er tamt.

Myndir af Flóafári 2017 má sjá á fésbókarsíðuskólans, sem og á síðu Nemendafélags FSu.

Nýjar fréttir