2.8 C
Selfoss

Endurbætur á gamla Mjólkurbúinu í Hveragerði

Vinsælast

Nú standa yfir framkvæmdir við gamla Mjólkurbúið að Breiðumörk 26 í Hveragerði sem miða m.a. að því að gera íbúð á 2. hæð hússins íbúðarhæfa. Mjólkurbúið er eitt elsta hús bæjarins, byggt árið 1929 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Stofnun Mjólkurbús Ölfusinga og bygging hússins markaði upphaf þéttbýlis í Hveragerði.

Nú er búið er að fjarlægja spónaplötuklæðningu og plasteinangrun innan af útveggjum 2. hæðar, endureinangra útveggi með steinullareinangrun og klæða þá með gifsplötum. Einnig er búið að lagfæra hitalagnir og einangra þak. Nú er verið að skipta um glugga á 2. hæð og færa þá til upprunalegs horfs. Næsta sumar verður lokið við að skipta um glugga á húsinu en þá verður einnig þakjárn og þakrennur endurnýjaðar og farið í múrviðgerðir á útveggjum og þeir málaðir. Ráðgjafar við framkvæmdina eru Sigurður Þ. Jakobsson tæknifræðingur og Stefán Örn Stefánsson arkitekt. Vænta má að húsið verði bæjarprýði að loknum þessum framkvæmdum. Í íbúðinni kemur svo til með að búa 7 manna fjölskylda frá Sýrlandi sem væntanleg er nú til landsins í lok janúar.

Nýjar fréttir